Hjálp

Allt sem þú þarft að vita til að nota Úrslitaspá.

Hvað er Úrslitaspá?

Úrslitaspá er vefsíða þar sem þú getur spáð fyrir um niðurstöður úrslitakeppna. Þú spáir fyrir um sigurvegara og fjölda leikja í hverri viðureign, og færð stig þegar úrslit liggja fyrir. Stofnaðu eða gakktu í deild og kepptu við vini þína.

Hvernig tek ég þátt?

  1. Búðu til aðgang — smelltu á „Nýskrá" efst á síðunni og staðfestu netfangið þitt.
  2. Veldu mót — farðu á „Mót" og opnaðu mót sem er væntanlegt.
  3. Fylltu út þína spá — smelltu á liðið sem þú telur munu vinna hvert einvígi. Ef vinna þarf fleiri en ein leik, veldu þá einnig fjölda leikja.
  4. Vistaðu spána — smelltu á „Vista spá" til að vista spána þína. Hægt er að breyta spá þangað til mótið byrjar.

Stigakerfi

Þú færð stig fyrir réttar spá. Stigin tvöfaldast í hverri umferð:

UmferðRéttur sigurvegariRéttur fjöldi leikjaHámark
Umferð 110+515
Umferð 220+1030
Umferð 340+2060

Bónusstig fyrir fjölda leikja fást aðeins ef þú valdir réttann sigurvegara.

Deildir

Deildir gera þér kleift að keppa við vini þína. Þú ert sjálfkrafa skráð/ur í aðaldeildina „Allir" þegar þú skilar spá í mót.

Búa til einkadeild — farðu í „Deildir" og smelltu á „Búa til deild". Einkadeildir fá sérstakan kóða sem þú deilir með vinum þínum.

Ganga í deild — smelltu á „Ganga í deild" og sláðu inn kóðann sem vinurinn þinn sendi þér.

Algengar spurningar

Get ég breytt spánni minni?

Já, þú getur breytt spám meðan mótið er ekki byrjað. Þegar mótið er byrjað er ekki hægt að breyta spánni.

Hvenær fæ ég stig?

Stig eru reiknuð þegar viðureign er lokið. Niðurstöðurnar birtast á síðu mótsins.

Get ég verið í fleiri en einni deild?

Já, þú getur verið í eins mörgum deildum og þér líkar, bæði opnum deildum og einkadeildum.